Míla og Síminn

 

Þetta eru afar verðmæt fyrirtæki, sem eru með öruggar tekjur frá almenningi og fyrirtækjum í framtíðinni og með sterkan rekstrargrundvöll. 

Síminn hefur forskot á aðra samkeppnisaðila og með sterka markaðsstöðu. Sé Síminn vel rekið fyrirtæki þá er hægt að lækka símakostnað til almennings.  Með því að nota það til að fjármagna aðrar óarðbærar fjárfestingar  þá mun það leiða til hækkunar á símareikningum okkar.

Það eru ekki nema nokkur ár síðan að Kristján Ra og Vigfús Þór fóru í sjóði Símans og drógu þaðan um 300 milljónir. Til að fá þá peninga aftur hefur Síminn eflaust hækkað gjaldskrána og við síðan endurgreitt milljónirnar fyrir þá með hækkuninni.

Við erum svo fá að við verðum að vanda vinnubrögðin. Ég tel Bakkabræður það skuldsetta að þeir verði að fá þessi fyrirtæki sama hvað það kostar til að rétta við stöðuna hjá sér.  Það mun þýða hækkanir á tryggingariðgjöldum, símareikningum og lántöku gengum Lýsingu og Vís.

Lýsing var til dæmis rekið með hagnaði frá stofnun þess 1986 í yfir 20 ár. Er ekki með síðustu ársreikninga.

Gleymum ekki ónafngreindum tekjustofni sem er í seðilgjöldum og vanskilagjöldum. Þetta eru litlar upphæðir sem skipta máli þegar tugir þúsunda greiða þær í hverjum mánuði - ég verð alltaf öskuvond inni í mér þegar ég fæ rukkun sem er dagsett 15 dögum eftir gjalddaga með rúmum 3000 króna vanskilakostnaði ofan á 30% dráttarvextina sem ég er að borga.

Ég vil kaupa bæði Lýsingu og Símann, ætla að fá lán hjá Kaupþingi fyrir kaupunum. Fyrirtækin fara létt með að greiða andvirði sitt á nokkrum árum.

Ég á ekki að þurfa að leggja út pening, ekki frekar en aðrir sem hafa staðið í fyrirtækjakaupum, enda er ég viðskiptavinur Kaupþings og væntanlega því í náðinni.

 


mbl.is Ætlar að krefjast verðmats á Exista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sif Jónsdóttir

Höfundur

Sif Jónsdóttir
Sif Jónsdóttir
Mannlegt eðli, pólitík og aðrar pælingar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...img_0599
  • IMG 0207

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband